Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur lækkað um 0,8% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 895 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 0,4% í gær en hefur lækkað jafnt og þétt í morgun og er nú komin á ný undir 900 stig.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 1% og stendur nú í 332 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins eitt félag, Atlantic Petroleum hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 70 milljónir króna en þar af eru 37,5 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 30 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 2 milljónir króna með bréf í Össur.