Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur hækkað um 2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 916 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 2% í gær og þriðja daginn í röð er það Straumur sem leiðir hækkanir. Þá er þetta í fyrsta sinn í rúmar tvær vikur sem vísitalan fer yfir 900 stig.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur hækkað um 0,9% og stendur nú í 323 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en sem fyrr segir er það Straumur sem leiðir hækkanir en líkt og í gær lækkar Century Aluminum mest félaga eða um 17,1%.

Velta með hlutabréf er um 60 milljónir króna en þar af eru tæpar 26 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 19,5 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 10 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.