Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 376 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,6% í gær en hefur klifrað hægt og rólega upp á við eftir að hafa lækkað örlítið við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en lítil hreyfing er á félögum. Þannig hafa aðeins tvö félög, Bakkavör og Össur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 85 milljónir króna en þar af eru tæpar 50 milljónir króna með bréf í Össur í aðeins 6 viðskiptum.

Þá er velta fyrir tæpar 14 milljónir króna með bréf í Bakkavör og tæpar 11,5 milljónir króna með bréf í Straum.