Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 672 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði að vísu í morgun og hafði um tíma hækkað um 0,3%. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,4% í gær en hafði hækkað í þrjá daga þar á undan.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 10 milljónir það sem af er degi en þar af er tæpar 6 milljónir með bréf í Icelandair Group. Í morgun fóru fram stök viðskipti fyrir rétt rúmar 5,6 milljónir í félaginu og önnur fyrir um 340 þúsund krónur.

Þá er velta fyrir um 1,7 milljónir með bréf í Marel en nokkuð minni velta í öðrum félögum.