Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,36% og er 6.626,63 stig.

Össur hefur hækkað um 2,63%, FL Group hefur hækkað um 1,88% og Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,73%

Fjögur fyrirtæki hafa lækkað í dag.

Hampiðjan hefur lækkað mest eða um 7,56%. Það eru ekki mikil viðskipti eru á bak við lækkunina. Þá hefur Flaga Group lækkað um 0,52%, Marel hefur lækkað um 0,44% og Kaupþing hefur lækkað um 0,10%.