Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,38% og er 7.887 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,9 milljarðar króna.

Atorka Group hefur hækkað um 3,51%, Teymi hefur hækkað um 3,4% í kjölfarið á nýju verðmati frá Landsbankanum, Eimskip hefur hækkað um 3,3%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 1,74% og Össur hefur hækkað um 1,37%.

Icelandair Group hefur lækkað um 0,37% og Actavis Group hefur lækkað um 0,35%.