Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,9% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.206 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% í gær en hækkað strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpir 1,8 milljarðar en þar af eru rúmir 780 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 500 milljónir með bréf í Landsbankanum, fyrir um 175 milljónir í Glitni og tæpar 160 milljónir með bréf í Exista en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan heldur áfram að veikjast og hefur nú veikst um 0,4% í morgun. Gengisvísitalan er nú 182,3 stig.