Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,22% og er 6.498 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 676 milljónum króna.

FL Group hefur hækkað um 1,27%, Kaupþing banki hefur hækkað um 0,81%, Flaga Group hefur hækkað um 0,65%, Alfesca hefur hækkað um 0,4% og Össur sömuleiðis.

Marel hefur lækkað um 1,24%, Mosaic Fashions hefur lækkað um 0,59%, Exista og Actavis hafa bæði lækkað um 0,45% og Glitnir hefur lækkað um 0,43%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,05% og er 118,5 stig.