Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,22% og er 6.228 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðvakt Mentis. Veltan nemur 1.067 milljónum.

Stærstu viðskiptin nema 652 milljónum króna með bréf Kaupþings banka á genginu 815.

Atorka Group hefur hækkað um 0,48%, Exista hefur hækkað um 0,46%, 365 hefur hækkað um 0,27% og Bakkavör Group hefur hækkað um 0,17%.

Landsbankinn hefur lækkað um 0,76%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,57%, Össur hefur lækkað um 0,44% og Kaupþing banki hefur lækkað um 0,25%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,09% og er 125,8 stig.