Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,06% og er 6.366 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 450 milljónum króna.

Icelandic Group hefur hækkað um 0,63%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,59%, Bakkavör Group hefur hækkað um 0,49% og FL Group hefur hækkað um 0,43%.

Össur hefur lækkað um 2,1%, Landsbankinn hefur lækkað um 0,77%, Flaga Group hefur lækkað um 0,7%, Dagsbrún hefur lækkað um 0,42% og Kaupþing hefur lækkað um 0,24%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,66% og er 119,5 stig við hádegi.