Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,7% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 4.179 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Mesta veltan það sem af er degi er með bréf í Glitni eða rúmlega 300 milljónir. Þá er velta með bréf í Kaupþing fyrir tæpar 175 milljónir og í Landsbankanum fyrir rúmlega 140 milljónir en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst í morgun um 0,5% og er gengisvísitalan nú 159,9 stig.