Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,80% og er 5.302 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis og nemur veltan um þremur milljörðum króna.

Glitnir hefur hækkað um 1,79%, Vinnslustöðin hefur hækkað um 1,21%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,2%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,14% og Bakkavör hefur hækkað um 0,84%.

Icelandic Group hefur lækkað um 1,26%, Össur hefur lækkað um 0,94%, Avion Group hefur lækkað um 0,31% og Dagsbrún hefur lækkað um 0,19%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,64% og er gengisvísitalan 125,9 stig.