Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,8% og er 5.470 stig við hádegi. Gengi krónu stendur í stað og er 144,5 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Velta með hlutabréf nemur 5,7 milljörðum króna, velta með skuldabréf nemur 30 milljörðum króna.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 6% en síðustu sjö daga nemur hækkunin 34,3%, Exista [ EXISTA ] og FL Group  [ FL ] hafa hækkað um 1,8%, jafnframt hefur Teymi hækkað um 1,3%.

Atorka Group [ ATOR ] hefur lækkað um 0,3%.