Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,3% og er 5.254 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,3% og er 150,5 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 5,8%, Skipti hefur hækkað um 5,4%, Exista [ EXISTA ] hefur hækkað um 4,7% og Straumur [ STRB ] hefur hækkað um 1,9%.

Flaga Group [ FLAGA ] hefur lækkað um 6,8%, Föroya banki [ FO-BANK ]  hefur lækkað um 2%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur lækkað um 1,2%, Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 1,1% og Alfesca [ A ]  hefur lækkað um 0,4%.