Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,7% og er 4.773 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur rúmlega tveimur milljörðum króna. Velta á skuldabréfamarkaði er öllu líflegri eða 19 milljarðar króna.

Eik banki [ FO-EIK ] hefur hækkað um 2,6% og Teymi [ TEYMI ] hefur hækkað um 0,2%.

Spron [ SPRON ] hefur lækkað um 4,8%, Straumur [ SPRON ] hefur lækkað um 2,8%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur lækkað um 2,7%, Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 1,7% og Atorka Group [ ATOR ] hefur lækkað um 1%.

Gengi krónu hefur veikst um 2,1% og er 136,4 stig.