Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,8% og er 5.294 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 1,3% og er 146,9 stig.

Velta á hlutabréfamarkaði nemur 2,4 milljörðum króna, velta á skuldabréfamarkaði nemur 12,5 milljöðrum króna.

Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,7%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 1,3% og sænska vísitalan um 1,4%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Spron [ SPRON ] hefur rokið upp um 6,8%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 3,3%, Exista [ EXISTA ] hefur hækkað um 2,6%, Atlantic Airways [ FO-BANK ] hefur hækkað um 2,6% og Skipti hefur hækkað um 2,55%.

Century Aluminium [ CENX ]  hefur lækkað um 2,6%, Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 1,8%, Icelandair [ ICEAIR ] hefur lækkað um 1,2%, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 1% og Kaupþing [ KAUP ] hefur lækkað um 0,9%.