Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,3% og er 4.430 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,2% og er 157,6 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Í morgun voru utanþingsviðskipti fyrir 2,6 milljarða króna með bréf Landsbankans og á genginu 22,9. Landsbankinn hefur hækkað um 1,5% við hádegi. Veltan á hlutabréfamarkaði nemur um þremur milljörðum króna.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 0,3%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 1% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 0,2%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.