OMXI15 vísitalan hefur lækkað um 1,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 346 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 1% í gær og hefur lækkað jafnt og þétt í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en líkt og í gær leiðir Straumur lækkanir dagsins en félagið hefur lækkað um 12,3% í morgun.

Velta með hlutabréf er tæpar 110 milljónir króna en þar af eru rúmar 42 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir rúmar 40 milljónir króna með bréf í Marel  og rúmar 19 milljónir króna með bréf í Össur.