Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 916 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 1,7% í gær og fjórða daginn í röð er það Straumur sem leiðir hækkanir. Í gær fór vísitalan í fyrsta sinn yfir 900 stig í rúmar tvær vikur.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur aftur á móti lækkað um 0,9% og stendur nú í 318 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en sem fyrr segir er það Straumur sem leiðir hækkanir en líkt og í gær lækkar Century Aluminum mest félaga eða um 10,2%.

Velta með hlutabréf er um 100 milljónir króna en þar af eru 66,5 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 17 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 2 milljónir króna með bréf í Bakkavör og Century Aluminum.