Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur hækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 897 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 2% í gær en Straumur leiðir nú hækkanir, annan daginn í röð.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur hækkað um 1% og stendur nú í 322 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins þrjú félög hafa hreyfst í dag. Sem fyrr segir leiðir Straumur hækkanir og hefur hækkað um 8,5% en þá hefur Össur hækkað um 2%. Century Aluminum hefur lækkað eitt félaga eða um 6,5%.

Velta með hlutabréf er um 100 milljónir króna en þar af eru tæpar 49 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 47 milljónir króna með bréf í Straum og tæpa milljón krónur með bréf í Century Aluminum.