Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,8% og er 4.149 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,7% og er 159,5 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan nemur um milljarð króna.

Teymi [ TEYMI ] hækkar um 6% í tíu viðskiptum fyrir nær átta milljónir króna. En félagið hefur lækkað mikið að undanförnu. Sjö daga hækkun nemur 2,5%. En það sem af er ári nemur lækkunin 73%.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 1,8% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 1,9%. Norska vísitalan OBX stendur í stað, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.