Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,02% og er 8.220 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2,6 milljörðum króna.

Teymi hefur hækkað um 2,3% en síðustu sjö daga hefur félagið hækkað um 18,2%, Marel hefur hækkað um 0,86% og Atorka Group hefur hækkað um 0,54%.

Flaga Group hefur lækkað um 4,32%, Straumur hefur lækkað um 1,94%, FL Group hefur lækkað um 1,52%, Exista hefur lækkað um 1,47% og Glitnir hefur lækkað um 1,23%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,3% og er 118,1 stig.