Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,65% það sem af er degi og er 6.658,69 stig.

Tryggingamiðstöðin hefur hækkað langmest eða um 9,66%. Avion Group kemur þar á eftir með 1,49% hækkun og Kaupþing banki hefur hækkað um 1,43%.

Landsbankinn hefur hækkað um 1,07% og Íslandsbanki hefur hækkað um 0,98%.

Icelandic Group hefur lækkað mest það sem af er degi, eða um 4,81%. Það er vegna afkomuviðvörunnar sem birt var í morgun. Atorka Group, kemur þar á eftir með 1,61% lækkun og Bakkavör Group lækkaði um 0,73%.