Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,01% og er 5.451 stig við hádegi, samkvæmt Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,5  milljörðum króna.

Exista hefur hækkað um 1,37%, Bakkavör Group hefur hækkað um 1,2%, Marel hefur hækkað um 1%, Kaupþing hefur hækkað um 0,7% og Teymi hefur hækkað um 0,35%.

Atlantic Petroleum hefur lækkað um 21,9%, Icelandic Group hefur lækkað um 4,9%, FL Group hefur lækkað um 3,8%, Eik banki hefur lækkað um 3,3% og Spron hefur lækkað um 2,2%.

Gengi krónu hefur veikst um 1,2% og er 126,5 stig.

Flesta vísitölur sem horft er til hafa lækkað það sem af er degi: Breska vísitalan FTSE100 hefur lækkað um 1,5%, danska vísitalan OMXC 3,4%,  norska vísitalan OBX hefur lækkað um 4,3% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 1,2%, samkvæmt upplýsingum frá verðbréfavefnum Euroland.

Markaðir lækkuðu einnig í gær. Í Bandaríkjunum tilkynntu Citigroup og Merril Lynch um mikinn taprekstur auk þess sem sagt var frá lélegum sölutölum í smásölu.