Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,2% og er 4.173 stig við hádegi.  Gengi krónu hefur styrkst um 0,5% og er 158,8 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan er um milljarður króna við hádegi.

Exista  [ EXISTA ] leiðir vagninn, líkt og sést á meðfylgjandi töflu, hefur hækkað um 2,2%.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 1,9%,  norska vísitalan OBX hefur hækkað um 2,6% og sænska vísitalan hefur hækkað um 0,6%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.