Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,1% og er 4.937 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Í gær lækkaði vísitalan um 2,4%.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 3,4 milljörðum króna.

Norska vísitalan OBX hefur hækkað um 2,6% og sænska vísitalan hefur hækkað um 0,6% en danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,2%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 6,3%, Eimskip hefur hækkað um 5,6%, Marel hækkaði um 4,2%, Glitnir hefur hækkað um 2,7% og Össur hefur hækkað um 1,9%.

Eik banki hefur lækkað um 3,8%, Föroya banki hefur lækkað um 3,4% og Exista hefur lækkað um 0,2%.