Úrvalsvísitalan hafði hækkað um 0,89% rétt fyrir klukkan eitt í dag og leiddi FL Group hækkunina, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.

Gengi bréfa FL Group hækkaði um 2,2% og Landsbanka Íslands um 1,3%. Gengi bréfa Atlantic Group hafði lækkað um 1,1% rétt fyrir hádegið og Avion Group lækkað um 0,8%.

Krónan hefur styrkst um 0,32% í dag og segja sérfræðingar að væntingar um stýrivaxtahækkun á morgun ýti undir krónuna.