Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,03% og er 7.353 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3.471 milljón króna.

Mosaic Fashions hefur hækkað um 0,7%, Marel hefur hækkað um 0,66%, Atorka Group hefur hækkað um 0,43% og Icelandair Group hefur hækkað um 0,36%.

Eimskip hefur lækkað um 1,48% , Teymi hefur lækkað um 0,72%, Exista hefur lækkað um 0,71%, Tryggingamiðstöðin hefur lækkað um 0,59% og Össur hefur lækkað um 0,41%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,08% og er 119,1 stig.