Úrvalsvísitalan[ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,15% og er 4.823 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,5 milljörðum króna.

Helstu vísitölur Norðurlandanna eru einnig grænar.

Century Aluminium [ CENX ] hefur hækkað um 1,5%, Glitnir [ GLB ], Teymi [ TEYMI ] og Spron [ SPRON ] hafa hækkað um 0,6% og Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 0,4%.

Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað um 2,1%, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 1,1%, Flaga Group [ FLAGA ] hefur lækkað um 1%, FL Group [ FL ] og Straumur [ STRB ] hafa lækkað um 0,9%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,2% og er 131,7 stig við hádegi.