Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,16% og er 6.845 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1.423 milljónum króna.

FL Group hefur hækkað um 2,11%, Eimskip hefur hækkað um 1,25%, Exista hefur hækkað um 0,82%, Mosaic hefur hækkað um 0,7% og Glitnir hefur hækkað um 0,41%.

Actavis hefur lækkað um 0,71%, Icelandic Group hefur lækkað um 0,68%, 365 hefur lækkað um 0,66%, Marel hefur lækkað um 0,66% og Alfesca hefur lækkað um 0,61%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,46% og er 123,6 stig.