Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,2% og er 5.037 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,5 milljarði króna.

Breska vísitalan FTSE100 hefur hækkað um 1,6%, danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 1%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 0,8% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 1,6%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað um 1,5%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 0,8%, þá hefur  Atlantic Airways [ FO-ATLA ], Kaupþing [ FO-BANK ] og Spron [ SPRON ] hækkað um 0,5%.

Teymi [ TEYMI ] hefur lækkað um 0,6%, Landsbankinn [ LAIS ] hefur lækkað um  0,2% og Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 0,1%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,5% og er 129,3 stig.