Úrvalavísitalan hefur hækkað um 0,21% og er 6.247 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2.450 milljónum króna.

Glitnir hefur hækkað um 1,49%, FL Group hefur hækkað um 1,32%, Dagsbrún hefur hækkað um 0,8%, Landsbankinn hefur hækkað um 0,75% og Alfesca hefur hækkað um 0,59%.

Straumur-Burðarás hefur lækkað um 1,15%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,87% og Avion Group hefur lækkað um 0,33%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,07% og er 122,2 stig.