Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,33% og er 7.320 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur um tólf milljörðum króna.

Glitnir hefur hækkað um 1,52%, FL Group hefur hækkað um 1,31%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,05%, Össur hefur hækkað um 0,88% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,52%.

Atlantic Petroleum hefur lækkað um 2,36%, Actavis hefur lækkað um 1%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,45%, Alfesca hefur lækkað um 0,42% og Atorka Group hefur lækkað um 0,15%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,01% og er 120,9 stig.