Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,39% og er 7.605 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðvakt Mentis. Veltan nemur 2.997 milljónum króna.

Teymi hefur hækkað um 5,21%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,47%, Kaupþing hefur hækkað um 1,15%, Exista hefur hækkað um 0,69% og Bakkavör Group hefur hækkað um 0,62%.

Alfesca hefur lækkað um 2,88%, Eimskip hefur lækkað um 0,83%, Marel hefur lækkað um 0,67%, Mosaic Fashions hefur lækkað um 0,62% og Landsbankinn hefur lækkað um 0,6%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,55% og er 120,6 stig.