Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,39% og er 6.148 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 986 milljónum króna.

Bakkavör Group hefur hækkað um 1%, Glitnir hefur hækkað um 0,92%, Kaupþing banki hefur hækkað um 0,64% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,58%.

Flaga Group hefur lækkað um 3,1%, Atlantic Petroleum hefur lækkað 3,06%, Össur hefur lækkað um 1,32%, Icelandic Group hefur lækkað um 0,64% og Alfesca hefur lækkað um 0,59%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,81% og er 123,7 stig.