Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,5% og er 4.869 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,6 milljörðum króna.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 0,2% og norska vísitalan OBX hefur hækkað um 1,2%. Sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 0,3%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 2,1%, Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 1%, Atorka Group [ ATOR ] hefur hækkað um 0,7%, Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 0,6%, Bakkavör Group [ BAKK ] og Landsbankinn [ LAIS ] hafa hækkað um 0,5%.

Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað um 2%, Eimskip [ HFEIM ] og Exista [ EXISTA ] hafa lækkað um 1%, FL Group [ FL ] hefur lækkað um 0,9% og Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 0,4%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,1% og er 141,4 stig.