Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,62% og er 8.455 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,3 milljörðum króna.

FL Group hefur hækkað um 1,66%, Landsbankinn hefur hækkað um 1,01%, Glitnir hefur hækkað um 0,51%, Straumur hefur hækkað um 0,48% og Icelandair hefur hækkað um 0,35%.

Föreya banki hefur hækkað um 3,09%, Eik banki hefur hækkað um 2,85%, 365 hefur lækkað um 0,64%, Össur hefur lækkað um 0,46% og Marel hefur lækkað um 0,31%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,92% og er 117,6 stig.