Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,64% og er 5.550 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,6 milljörðum króna.

Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,6%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 1,3% en sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,7%, samkvæmt upplýsingum frá verðbréfavefnum Euroland.

Exista hefur hækkað um 2,7%, Kaupþing hefur hækkað um 1,3%, Bakkavör Group hefur hækkað um 0,9%, Teymi hefur hækkað um 0,9% og Eimskip hefur hækkað um 0,6%.

Atlantic Petroleum hefur lækkað um 6,7%, Century Aluminium hefur lækkað um 5,9%, Eik banki hefur lækkað 3,2%, Icelandair Group hefur lækkað um 0,8% og Atlantic Airways hefur lækkað um 0,83%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,2% og er 125,5 stig.