Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,67% og er 6.249 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 1.098 milljónum króna.

Bakkavör Group hefur hækkað um 1,64%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,13%, Exista hefur hækkað um 0,93%, Glitnir hefur hækkað um 0,89% og FL Group hefur hækkað um 0,86%.

Atlantic Petroleum hefur lækkað um 0,9%, Tryggingamiðstöðin hefur lækkað um 0,79%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,58% og Össur hefur lækkað um 0,44%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,56% og er 123,3 stig við hádegi.