Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,78% og er 8.262 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,3 milljörðum króna.

Landsbankinn hefur hækkað um 1,47%, Kaupþing hefur hækkað um 0,96%, Össur hefur hækkað um 0,95%, Glitnir hefur hækkað um 0,89% og Exista hefur hækkað um 0,6%.

365 hefur lækkað um 2,89%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,75%, Atorka Group hefur lækkað um 0,53%, Straumur hefur lækkað um 0,49% og Eimskip hefur lækkað um 0,24%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,41% og er 116,6 stig.