Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,84% og er 7.393 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3.974 milljónum króna.

Kaupþing hefur hækkað um 1,39%, Glitnir hefur hækkað um 1,14%, Teymi hefur hækkað um 0,78%, Exista hefur hækkað um 0,72% og FL Group hefur hækkað um 0,67%.

Alfesca hefur lækkað um 1,19% og Actavis hefur lækkað um 0,43%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,16% og er 120,7 stig.