Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,93% og er 4.882 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,4 milljörðum króna.

Breska vísitalan FTSE100 hefur hækkað um 1,1%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 1,5%, sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 0,6%.

Danska vísitalan OMXC stendur í stað, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 2,1%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 1,3%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 1,2%, Landsbankinn [ LAIS ] hefur hækkað um 0,9% og Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 0,8%.

Century Aluminium [ CENX ] hefur lækkað um 1,7%, Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað um 1,2%, Flaga Group [ FLAGA ] hefur lækkað um 1,1%, Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 0,7% og Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 0,7%.

Gengi krónu [ OMX ISK ] hefur styrkst um 0,4% og er 136,6 stig.