Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,28% og er 7.587 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Veltan nemur 3.997 milljónum króna.

Kaupþing hefur hækkað um 2,06%, Actavis hefur hækkað um 2,01%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,44%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,21% og Glitnir hefur hækkað um 1,1%.

Atorka Group hefur lækkað um 1,49%, Atlantic Petroleum hefur lækkað um 1,3%, Flaga Group hefur lækkað um 0,81%, 365 hefur lækkað um 0,55% og Össur hefur lækkað um 0,4%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,02% og er 120,3 stig.