Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,34% við hádegi og er 8.100 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 8,1 milljarði króna.

Century Aluminium hefur hækkað um 2,97%, Bakkavör Group hefur hækkað um 2,6%, Landsbankinn hefur hækkað um 2,09%, Glitnir hefur hækkað um 1,79% og Straumur hefur hækkað um 1,77%.

Icelandic Group hefur lækkað um 0,83%, Atlantic Petroleum hefur lækkað um 0,27%, og FL Group hefur lækkað um 0,19%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,32% og er 121,1 stig.