Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,12% það sem af er degi og er 6.084,94 stig en síðasta mánuð hefur hún lækkað um 11,42%.

FL Group leiðir hækkunina með 3,78% hækkun, Actavis hefur hækkað um 2,92%, Íslandsbanki hefur hækkað um 2,72 og Alfesca hækkað um 2,51%.

Tvö fyrirtæki hafa lækkað það sem af er degi. Atorka Group lækkar um 0,85% og Flaga Group lækkar um 0,59%.