Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,5% og er 5.692 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Flaga Group [ FLAGA ] hefur hækkað um 28,7% í veltu sem nemur 5,3 milljónum króna, Exista [ EXISTA ] hefur hækkað um 6,4%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 5,16%, Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 3,79% og Eik banki [ FO-EIK ] hefur hækkað um 3,5%.

Ekkert félag hefur lækkað.

Gengi krónu hefur styrkst um 2,5% og er 125,1 stig.