Icelandic Group [ IG ] hefur lækkað um 7,5 í Kauphöllinni í morgun og er gengi félagsins nú 2,59. Lítil velta hefur verið með bréf í félaginu eða aðeins 9,4 milljónir hafa skipt um hendur í sjö viðskiptafærslum.

Century Aluminum [ CENX ] hefur lækkað um 1,2% en aðeins þessi tvö félög hafa lækkað.

Þá hefur Føroya Banki [ FO-BANK ] hækkað mest fyrirtækja eða um 7,5%. Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 5,5% og Exista [ EXISTA ] um 5,4%.

Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 3,24% og er velta með hlutabréf 12,2 milljarðar.

Krónan hefur veikst um 1%.