Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,73% og er 6.776 stig, samkvæmt upplýsingum frá M5. Hefur hún hækkað um 5,63% frá áramótum. Það sem af er degi nemur veltan 6.990 milljónum króna.

365 hefur hækkað um 2,7%, Teymi hefur hækkað um 1,31%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,12%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,11% og FL Group hefur hækkað um 1,09%.

Össur hefur lækkað um 0,44%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,15% og er 126,1 stig.