Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,08% og er 6.310 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Veltan nemur 9.218 milljónum króna.

Avion hefur hækkað um 1,38%, Actavis hefur hækkað um 0,75% og Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,17%.

Össur hefur lækkað um 1,57%, Bakkavör Group hefur lækkað um 1,02%, FL Group hefur lækkað um 0,84%, Aflesca hefur lækkað um 0,78% og Marel hefur lækkað um 0,64%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,01% og er 122,3 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.