Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,13% og er 8.165 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,6 milljarði króna.

365 hefur hækkað um 1,86%, Alfesca hefur hækkað um 1,65%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,2%, FL Group hefur hækkað um 1,02% og Teymi hefur hækkað um 0,2%.

Össur hefur lækkað um 0,96%, Actavis Group hefur lækkað um 0,56%, Eimskip hefur lækkað um 0,49%, Atlantic Petroleum hefur lækkað um 0,45% og Landsbankinn hefur lækkað um 0,39%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,04% og er 113,1 stig.